02.04.2012 13:39
Sumarið 2012
Þessi flotti farþegabátur mun þjónusta okkar svæði í sumar sem hann hefur gert svo dyggilega undanfarin ár en nú eru aðrir eigendur að honum og ættla þeir að vera með áætlanir frá Bolungarvík 4 daga á viku í sumar 2 ferðir á dag til Grunnavíkur og Jökulfjarða og erum við sem rekum ferðaþjónustuna í Grunnavík mjög ánægð með það og verður gaman að sjá hvernig það verður.
Mjög gott fyrir þá sem vilja koma til Grunnavíkur í dagsferð og skoða sig um í fallegri náttúru.
Mjög gott fyrir þá sem vilja koma til Grunnavíkur í dagsferð og skoða sig um í fallegri náttúru.
Skrifað af Sigurrós Sigurðardóttir
24.01.2012 12:59
Grunnavík.
Góðan daginn góðir ferðalangar og gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna, nú er daginn að lengja og stittist óðum í vor og sumarið,nokkrir hópar hafa staðfest panntanir hjá okkur og ef einhver þarna úti er að spá í að heimsækja þetta frábæra svæði sem Jökulfirðirnir eru endilega að hafa samband sem fyrst :)

Skrifað af Sigurrós Sigurðardóttir
19.10.2011 11:04
Grunnavík í Jökulfjörðum
Falleg sumarmynd ,séð niður Grunnavíkina, einnig eru komnar inn nokkrar myndir frá sumrinu sem mynnir okkur á að tímin er fljótur að líða og þeir sem huga að gönguferðum næsta sumar um þetta svæði þá er mjög gott að pannta tímanleg fyrir þá sem vilja gistingu í húsi,erum með svefnpokagistingu á góðum dýnum,eldunaraðstöðu,sturtu og heitan pott,öll símanúmer eru á síðunni, eins getið þið sent okkur póst ef einhverjar spurningar vakna þá er um að gera að hafa samband.
Skrifað af Sigurrós Sigurðardóttir
18.08.2011 22:24
Ferðaþjónusta í Grunnavík
Þá er þetta sumar að enda og vonandi fáum við gott haust,sumarið í sumar var stutt mjög kalt í júní en júlí ágætur og þokkalegt það sem af er ágúst ,við ættlum okkur að halda ótrauð áfram með þjónustu í Grunnavík ,svefnpokagistingu með góðri eldunaraðstöðu og tjaldstæðum, viljum við þakka öllum þeim sem heimsóttu okkur í sumar og eigið góðan vetur framundan :)
Skrifað af Sigurrós Sigurðardóttir
- 1
Flettingar í dag: 107
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 84
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 107128
Samtals gestir: 40055
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 09:53:26
